Ungt fólk sem vill breytingar
Tími fyrir breytingarUngt fólk í Sandgerði
Kæru bæjarbúar Sandgerðis
Nú er kosningadagur handan við hornið og hafa loforðin flogið hátt!. En er ekki of hátt flogið? D - listi og K - listi hafa gefið út sína stefnuskrá. Spikfeitir doðrantar með fögru orðalagi og löngum lista loforða. Í málefnavinnu S-listans var lögð áhersla á að sem flestir kæmu að vinnunni og þegar komin var góð mynd á málefnin var lagt raunhæft mat hvað frambjóðendur treysta sér að lofa. Enda stefnuskráin vinnuplagg sem bæjarfulltrúar S-listans ætla sér að vinna eftir næstu ár. Það var skýrt frá upphafi að S - listinn vildi ekki leggja fram langan lista af loforðum sem yrði síðan á hverri stefnuskrá næstu tuttugu árin. Ef þið lítið yfir stefnuskrár meirihlutaflokkana (K og D) síðastliðnar tvær kosningar (1998 og 2002) munið þið komast því að mikið af sömu fleygu loforðunum hafa verið gefin aftur og aftur. Trúverðugleikinn víkur fyrir óttanum við að missa af sæti við valdaborðið
Það er komin þreyta í fráfarandi meirihluta bæjarstjórnar og starfandi bæjarstjóra og krafa um breytt vinnubrögð verður æ sterkari.
Með því að styðja S - listann ertu að kjósa breytingar. Nútímalegri vinnubrögð. Ferskt fólk. Breytingar eru eitthvað sem engin á að óttast sérstaklega ekki þegar þú sjálfur hefur áhrif á hvernig breytingarnar verða. Til að Samfylkingin og óháðir í Sandgerði fái raunverulegt vald til að breyta Sandgerði í bæjarfélag í bullandi sókn, bæjarfélag sem aðrir dást að, þarf S - listinn að fá þrjá menn í bæjarstjórn. Þitt er valið á morgun! Settu X við S ef þú vilt breytingar og nýjar áherslur. Við viljum ekki sama morgunmatinn fjögur ár í viðbót! S-listinn er eina raunhæfa ógnin við þá sem hafa setið við valdaborðið undanfarin 16 ár.
Hallbjörn V. Rúnarsson
9. sæti
ATH!!!!Ungt fólk í Sandgerði
Allir að muna eftir stóra kvöldinu í kvöld!!!! Það verður svaðaleg stemning og ALLIR að mæta!!!Íbúðarhúsnæði fyrir ungt fólkUngt fólk í Sandgerði
Málefni unga fólksins hafa því miður ekki verið í kastljósi bæjarstjórnar Sandgerðis undanfarið kjörtímabil.
Með þeirri uppbyggingu á húsakosti innan Sandgerðis virðist sem það hafi gleymst að gera ráð fyrir ungu fólki sem er að kaupa sínar fyrstu íbúðir. Ungt fólk er í mörgum tilfellum láglaunafólk, einstætt og/eða í námi. Í Reykjanesbæ er hverfi sem í daglegu tali oft kallað Litla Sandgerði (Heiðarholtið). Í Sandgerði vantar litlar íbúðir sem gefa ungu fólki tækifæri til að komast inná á húsnæðismarkaðinn. Ungt fólk hefur í fæstum tilfellum efni á að kaupa sér einbýlishús. Við missum því unga fólkið úr bænum um leið og það kaupir sína fyrstu fasteign. S-listinn mun vinna að því að húsnæði verði byggt fyrir ungt fólk og að því verði gert kleift að kaupa sér eign innan bæjarfélagsins. Alltof hátt hlutfall þeirra sem alast upp í Sandgerði flytjast í burtu. Við þurfum fleiri atvinnutækifæri, fjölbreyttari búsetuskilyrði og skilvirkari stefnu í fjölskyldumálum.Gróska bæjarfélagsins sýnir að góðar hugmyndir kvikna hjá Sandgerðingum. Fræðarasetrið, Ný-vídd, Jöklaljós og Púlsinn eru allt dæmi um hugmyndir sem var hrint í framkvæmd og tókust vel. Með því að virkja íbúa bæjarfélagsins er hægt að stofna fyrirtæki og jafnvel stofnanir sem kalla á sérfræðiþekkingu og þannig getum við fengið unga fólkið aftur heim. Við þurfum að kynna fyrir því atvinnumöguleika innan bæjarfélagsins, t.d. með því að bjóða nemendum Fjölbrautaskóla Suðurnesja hingað til almennrar kynningar á möguleikunum sem fyrir hendi eru. Spyrjum unga fólkið um framtíðardrauma þeirra, kynnum bæjarfélagið fyrir þeim og gefum þeim tækifæri til að setjast að í heimabyggð.
S-listinn ætlar að stuðla að stofnun ungmennaráðs í Sandgerði, sem er vettvangur fyrir ungt fólk til að fjalla um hagsmunamál sín. Þannig fær ungt fólk tækifæri til að vinna að eigin málum, koma skoðunum sínum á framfæri við bæjarstjórn og þannig hafa bein áhrif á það hvað er gert í málefnum ungmenna í Sandgerði.
Setjum x við S á kjördag, fyrir unga fólkið.
Stórhátíð unga fólksins á föstudagUngt fólk í Sandgerði
Stórhátíð unga fólksins á Mamma Mía á föstudag 26. maí. Húsið opnar kl. 21:00 og stuðið verður langt fram á rauða nótt!
Léttar veitingar í boði.
Dagskrá:
Matti Óla opnar kvöldið eins og honum einum er lagið
Glens og gaman hjá Ungu fólki sem vill breytingar
Mistery boy tryllir lýðinn
Óli Þór slær á létta strengi
Fjöldasöngur undir stjórn Rjúpunnar
Óvænt endurkoma einnar frægustu hljómsveitar allra tíma í Sandgerði.
18 ára aldurstakmark
Sjáumst hress og kát.
Afhverju skiptir pólitík okkur máli?Ungt fólk í Sandgerði
Hvort sem okkur líkar betur eða verr er pólitíkinn eitthvað sem skiptir okkur öll máli. Þeir sem eru kosnir taka ákvarðanir sem hafa áhrif á samfélagið okkar og þar með okkur sjálf.Sagt er að það sé einkum tvennt sem ráði því að fólk ákveði að taka þátt í pólitík, annars vegar vilji til að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og hins vegar persónulegur metnaður.
Við vonum a.m.k. að allir þeir sem eru að bjóða sig fram í bæjarstjórnina í Sandgerði hafi einhvern metnað fyrir sig sjálfa um leið og þeir vilja bæta samfélagið sitt, því metnaðarlaust fólk er ekki líklegt til að ná árangri (og þá er sama hvort fólk er í stjórnmálum, tónlist eða hverju sem er).
Við höfum þá skoðun að við njótum forréttinda að hafa kosningarétt, því það eru ekki allir sem eru svo heppnir (sbr. íslenskir kvennmenn fyrir ekki svo mörgun árum og fullt af fólki sem lifir á þessari Jörð í dag) að hafa tækifæri til að hafa áhrif á hvernig þeirra samfélagi er stjórnað. Það er því með stolti sem við förum og kjósum í hvert skipti sem það er í boði.
Því viljum við hvetja alla sem lesa þetta til að nýta kosningaréttinn sinn nú á laugardaginn, sama hvar þeir búa eða hvaða skoðun þeir hafa. Við hvetjum fólk til að kynna sér málefnin og fólkið og taka ákvörðun út frá eigin brjósti, ekki út frá því sem vinirnir segja, ekki út frá því sem mamma og pabbi segja, ekki út frá því sem einhverjir "snillingar" hjá framboðslistunum segja - heldur út frá því sem ykkar eigin sannfæring segir ykkur að gera.
Þó svo að maður ætli til þess að allir sem taki þátt í stjórnmálum hafi þroska til að skilja á milli manna og málefna er það því miður ekki þannig í raunveruleikanum.
Ekki gleyma því að það eru til fullt af aðferðum til að hafa áhrif aðrar en taka þátt í kosningum. Það er hægt að skrifa greinar, senda inn erindi, mótmæla á götunum, bera fram boðskap í listum, taka þátt í fundum eða bara tala við þá sem hafa verið kosnir í bæjarstjórn eða á alþingi um það sem liggur manni á hjarta. Tjáningarfrelsið er nefnilega alveg jafn dýrmætt og rétturinn til að mega kjósa. Við viljum líf og við viljum umræðu og við viljum nýtt fólk - og þess vegna smíðuðum við bara nýtt framboð!
Við hvetjum alla jafnt unga og aldna til að nota kosningaréttinn sinn á laugardaginn og kjósa það sem þið teljið að sé best fyrir samfélagið. Að sjálfsögu teljum við að x-ið við s-ið sé besti kosturinn fyrir alla :)
Ungt fólk í Sandgerði
Í ljósi nýliðinna atburða í Sandgerði verður skemmtun sem fyrirhuguð var á föstudag blásin af. Hugur okkar allra er með aðstandendum.
HALLÓ ALLIR!!!!!!Ungt fólk í Sandgerði
Sælt veri fólkið við viljum minna alla á evrovision kvöldi á morgun (fimmtudag) og okkar stórglæsilega skemmtikvöld á föstudaginn.
Frábær dagskrá er i gangi á föstudagkvöldið og opnar húsið kl 21:00 og hefst skemmtunin á slaginu 22:00 við hvetjum alla til að mæta![]()
Fisk á diskinn minnUngt fólk í Sandgerði
manns mættu á svæðið og auðvitað var fiskur til fyrir alla. Fiskurinn smakkaðist mjög vel enda úrvalskokkar sem matreiddu fiskinn, en Ólöf, Arna, Gulla og Lóa eiga miklar þakkir skilið. Fiskurinn var í boði Hallgríms Artúrssonar og Guðjóns Bragasonar. Margrét Frímansdóttir mætti og talaði við fólkið og í dag mætti svo óvænt Katrín Júlíusdóttir líka í heimsókn. 
Við hér í ungliðahreyfingunni ætlum að hafa stóra skemmtun á föstudaginn og verður hún auglýst
betur í vikunni, en einnig erum við líka með Mamma Mía á fimmtudaginn þegar undankeppni eurovision verður sýnd og verður hún sýnd á breiðtjaldi. Ölið verður á tilboðsverði og snakk og smávegis í boði. Allir að mæta í mikla stemmningu og hvetja hana Silvíu Nótt áfram.x-s fyrir skemmtilegheit
Fiskiveisla S-listans á föstudagUngt fólk í Sandgerði
Samfylkingin og óháðir í Sandgerði bjóða til fiskiveislu á föstudaginn 12. maí kl.
18:00.
Boðið verður upp á grillaðan fisk af ýmsu tagi og pylsur "on the side" fyrir vandláta. Ungra manna sveit S-listans hvetur alla til að mæta tímanlega í herlegheitin á föstudag því að öllum líkindum verður slegist um góðgætið. Tökum sumrinu með opnum örmum og kyndum í kolunum og gleðjumst saman.
Föstudagur 12. maí, kl. 18:00
ALLIR MEÐUngt fólk í Sandgerði
Bílaratleikurinn heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér einstaklega. Lóa og félagar rústuðu dæminu og fengu tremma í hel!
Bílaratleikurinn var skipulagður eingöngu af ungum frambjóðendum S-listans og var þeirra hlutur til fyrirmyndar.
Um kvöldið var grillað og var mikill gestagangurá kosningaskrifstofunni. Það sem vakti athygli sumra var gestkoma frambjóðenda af öðrum framboðum og getur það varla talist til annars en góðs. Enda elskum við fólk og óskum þess heitt að fólk elski okkur.
Til að taka helgina saman; var einstkalega mikið af góðri orku í mannskapnum sem var nauðsynleg enda mikil barátta framundan. Takk fyrir samveru, allir sem komu og látið sjá ykkur aftur!